Nýir gluggar og klæðning
Ný utanhússklæðning og gluggar sem standast íslenskt veðurfar.

Gömlu gluggarnir voru farnir að leka og klæðningin hafði látið á sjá eftir áratuga veðrun. Skipt var um alla glugga og húsið klætt að nýju.
Gluggarnir voru settir í með nýjum ísetningarramma, þéttiborðum og vatnsbrettum. Undir klæðninguna var sett vindvörn og loftun svo veggirnir haldist þurrir.
Útkoman er hlýrra hús, minni viðhaldsþörf og útlit sem heldur sér um ókomin ár.
Um verkið
- Tegund verks: Endurbætur utanhúss
- Verkþættir: Gluggaskipti, vindvörn, klæðning og frágangur
- Þjónusta: Gluggar, hurðir og innréttingar
Ferli verksins

1
Úttekt
Ástand glugga og klæðningar metið og mál tekin af öllum opum.

2
Undirbúningur
Gamlir gluggar fjarlægðir og op undirbúin fyrir ísetningu.

3
Framkvæmd
Nýir gluggar settir í, vindvörn lögð og klæðning sett upp.

4
Afhending
Áfellur og vatnsbretti frágengin og húsið afhent fullklárað.
