
Þakið var komið á tíma: leki á nokkrum stöðum og fúi í hluta af borðaklæðningu. Ákveðið var að taka það alveg niður að sperrum.
Skemmdar sperrur og borð voru endurnýjuð, nýr þakdúkur lagður og þakið klætt að nýju. Rennur, niðurföll og áfellur voru einnig endurnýjuð.
Verkið var skipulagt í áföngum svo húsið væri alltaf lokað fyrir veðri á meðan á framkvæmdum stóð.
Um verkið
- Tegund verks: Þakendurnýjun
- Verkþættir: Niðurrif, sperrur, þakdúkur, klæðning og rennur
- Þjónusta: Þök og klæðningar
Ferli verksins

1
Úttekt
Þakið skoðað, skemmdir kortlagðar og verkáætlun gerð.

2
Niðurrif
Gamla klæðningin fjarlægð og sperrur yfirfarnar.

3
Framkvæmd
Skemmt timbur endurnýjað, nýr dúkur lagður og þakið klætt.

4
Afhending
Rennur og niðurföll sett upp og lokaúttekt gerð með eiganda.
